Íslenski boltinn

Enn einn sigur Stjörnunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir.
Harpa Þorsteinsdóttir. Vísir/Daníel
Stjarnan vann sinn sjöunda sigur í röð er áttunda umferð Pepsi-deildar kvenna hófst í kvöld.

Íslandsmeistararnir unnu þá öruggan sigur á Aftureldingu í Mosfellsbæ, 4-0. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvívegis og þær Rúna Sif Stefánsdóttir og Meagan Kelly eitt hvor.

Stjarnan hefur unnið alla leiki sína á tímabilinu síðan liðið tapaði fyrir Breiðabliki í fyrstu umferð. Þess má geta að Stjörnustúlkur fóru taplausar í gegnum síðasta tímabil.

Stjarnan er nú með 21 stig og átta stiga forystu á næsta lið í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×