Erlent

Enn einn bærinn fallinn í hendur Kúrda

Samúel Karl Ólason skrifar
Peshmerga sveitir Kúrda á gangi nærri Mosul.
Peshmerga sveitir Kúrda á gangi nærri Mosul. Vísir/AFP
Peshmerga sveitir Kúrda í Írak segjast hafa tekið bæinn Bashiqa úr höndum vígamanna ISIS. Bærinn er í einungis tólf kílómetra fjarlægð frá borginni Mosul. Borgin stærsta og eitt af síðustu vígum Íslamska ríkisins í Írak. Um 30 þúsund menn taka nú þátt í aðgerðum þar sem ætlað er að reka ISIS-liða frá borginni.

Ljósmyndari Reuters sá Kúrdana sprengja minnst þrjá bíla sem vígamenn óku að víglínunum. ISIS-liðar hafa hlaðið slíka bíla af sprengiefnum og reynt að valda miklum skaða meðal óvinna sinna með þeim.

Sóknin hófst á mánudaginn og er studd af bandalagi Bandaríkjanna gegn ISIS. Á jörðu niðri tekur írakski herinn þátt í aðgerðunum, Peshmerga, vopnaðar sveitir sjíta og súnníta og fleiri aðilar. Tyrkir, sem eru með um 500 hermenn í Írak í óþökk stjórnvalda þar, vilja einnig koma að baráttunni um Mosul. Stjórnvöld Írak vilja hins vegar ekki leyfa þeim það að svo stöddu.

Vígamenn ISIS notast við sjálfsmorðsárásir, leyniskyttur og göng við varnirnar. Þeir hafa einnig kveikt í brennisteinsverksmiðju til að hægja á óvinum sínum. Minnst þúsund manns hafa þurft aðhlynningu eftir að hafa andað að sér eiturgufum.

Talið er að á milli fjögur og átta þúsund vígamenn haldi borginni.


Tengdar fréttir

Þúsundir flýja átök við Mosúl

Harðir bardagar hafa geisað í næsta nágrenni borgarinnar Mosúl í Írak. Íraski stjórnarherinn hefur ásamt hersveitum Kúrda sótt að borginnisíðan á mánudag.

ISIS myrtu hundruði í Mosul

Fullyrt er að ISIS hafi myrt 284 menn og drengi í Mosul eftir að hafa nýtt þá sem mannlega skyldi.

Háttsettir liðsmenn ISIS flýja Mosúl

Bandarískur hershöfðingi segir líklegt að útlenskir liðsmenn ISIS verði eftir í Mosúl og berjist, en að aðrir leggi á flótta.

Hálf milljón barna í hættu í Mosúl

Írakskar og kúrdískar öryggissveitir sækja nú að borginni og reyna taka hana aftur úr höndum liðsmanna ISIS sem hafa þar ráðið lögum og lofum í rúm tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×