Körfubolti

Enn ein þrenna Westbrook dugði ekki til sigurs

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Russell Westbrook, leikmaður Oklahoma City Thunder, náði sinn 24. þrennu á tímabilinu í nótt í NBA-deildinni í körfubolta en enn eina ferðina dugði það ekki til sigurs.

OKC tapaði nefnilega á heimavelli fyrir LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers, 107-91, þar sem Westbrook skoraði 20 stig, tók tólf fráköst og gaf tíu stoðsendingar.

LeBron skoraði 25 stig fyrir Cleveland auk þess sem hann tók fjórtán fráköst og gaf átta stoðsendingar og var því aðeins tveimur stoðsendingum frá þrennu sjálfur. Hann varð í nótt fyrsti maðurinn í sögu Cleveland sem skorar 20.000 stig fyrir félagið.

Kyrie Irving bætti við 29 stigum fyrir gestina auk þess sem hann gaf tíu stoðsendingar en Kevin Love spiklaði aðeins tólf mínútur og og skoraði eitt stig en tók átta fráköst.

Cleveland er sem fyrr á toppnum í austurdeildinni með 32 sigra og fjórtán töp en liðið er búið að vinna tvo leiki í röð en þó aðeins fjóra af síðustu tíu. OKC er í sjötta sæti vesturdeildarinnar.

Þar trónir Golden State á toppnum eins og undanfarin misseri eftir þriðja sigurinn í röð í nótt og þann níunda í síðustu tíu leikjum. Liðið lagði Portland Trail Blazers, 113-11, á útivelli í nótt þrátt fyrir að vera án Steph Curry.

Kevin Durant skoraði 33 stig, tók tíu fráköst og gaf sex stoðsendingar í liði Warriors og Klay Thompson skoraði 27 stig. C.J. McCollum skoraði 28 stig fyrir Portland.

Úrslit næturinnar:

Atlanta Hawks - New York Nicks 142-139

Cleveland Cavaliers - OKC Thunder 107-91

Indiana Pacers - Houston Rockets 120-101

New Orleans Pelicans - Washington Wizards 94-107

Toronto Raptors - Orlando Magic 113-114

Chicago Bulls - Philadelphia 76ers 121-108

San Antonio Spurs - Dallas Mavericks 101-105

Portland Trail Blazers - Golden State Warriors 111-113

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×