Innlent

Enn ein lægðin á leiðinni en útlitið gott fyrir gamlárs

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ekki er útlit fyrir nein stórátök í veðri fyrstu dagana á nýju ári.
Ekki er útlit fyrir nein stórátök í veðri fyrstu dagana á nýju ári. Vísir/stefán
Enn ein djúp lægð nálgast nú landið og verður hún stödd vestur af landinu eftir hádegi og veldur sunnan stormi á landinu í dag. Búist er við slagveðursrigningu á láglendi sunnan- og vestanlands og útlit er fyrir hvassa suðvestanátt með éljum í kvöld.

„Það hlýnar oft minna en áður í þessari sunnanátt og því hlánar væntanlega seint og illa á fjallvegum og má búast við slyddu eða snjókomu á þeim vegum lengst af. Eins og svo oft í þessari vindátt þá verður úrkomulítið um landið norðaustanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar, en gert er ráð fyrir að það muni kólna aftur í veðri í kvöld.

Lægðin skiptir sér í tvennt í nótt og mun verri helmingur hennar koma að norðausturhorni landsins á morgun og valda þar vestlægum stormi með snjókomu. Betri helmingurinn mun lóna vestur af landinu, nægilega langt í burtu til að koma lítið við sögu, segir á vef Veðurstofunnar. „Það þýðir að vindur á Suður- og Vesturlandi á morgun verður þokkalega skaplegur, en einhver éljahreytingur gerir vart við sig.“

Gamlársdagur heilsar með norðanstrekkingi og éljum á norðanverðu landinu. Þegar líður á daginn minnkar vindurinn smám saman og éljunum fækkar. Veðurútlit fyrir gamlárskvöld er því áfram hagstætt, sér í lagi miðað við það se mgenguð hefur á undanfarið.

Þá segir að nýjustu langtímaspár bendi til þess að ekki verði nein stórátök í veðri fyrstu dagana á nýju ári.

Veðurhorfur á landinu öllu næsta sólarhringinn:

Vaxandi sunnanátt, víða 18-23 m/s í dag. Snjókoma eða slydda í fyrstu, en síðan rigning á láglendi. Úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hiti 2 til 7 stig.

Snýst í vestlægari átt seint í dag og kólnar. Suðvestan 13-23 í kvöld og él, hvassast með suður- og vesturströndinni.

Vestlægur stormur á Norðaustur- og Austurlandi á morgun með snjókomu. Hægari vindur í öðrum landshlutum og él. Frost 0 til 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×