Körfubolti

Enn bætist í leikmannahóp Dallas

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jameer Nelson er nýjasti liðsmaður Dallas Mavericks.
Jameer Nelson er nýjasti liðsmaður Dallas Mavericks. Vísir/Getty
Dallas Mavericks hefur samið við leikstjórnandann Jameer Nelson. Talið er að samningurinn sé til tveggja ára.

Nelson býr yfir mikilli reynslu, en hann var valinn í nýliðavalinu 2004 af Orlando Magic þar sem hann spilaði í áratug. Hann tók þátt í Stjörnuleiknum 2009.

Nelson skoraði 12,1 stig og gaf 7,0 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur.

Dallas-menn hafa verið duglegir á leikmannamarkaðinum í sumar, en auk Nelsons hefur Dallas fengið miðherjann Tyson Chandler og framherjann Chandler Parsons til liðs við sig.

NBA

Tengdar fréttir

Phil Jackson byrjaður að hreinsa til hjá New York Knicks

NBA-körfuboltaliðin New York Knicks og Dallas Mavericks hafa komist að samkomulagi um að skipta á sex leikmönnum og það er ljóst að Phil Jackson er byrjaður að hreinsa til í herbúðum Knicks-liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×