Lífið

Enn bætist í flóru listamanna sem koma fram á Þjóðhátíð

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þau munu kíkja til Eyja um verslunarmannahelgina.
Þau munu kíkja til Eyja um verslunarmannahelgina. vísir/valli/pjetur/vilhelm
Ágústa Eva, Eyþór Ingi, Buff og Jón Jónsson hafa bæst við langan lista listamanna sem munu troða upp á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina. Eyþór Ingi og Ágústa Eva munu aðstoða Buff-liða á sviðinu. Jón Jónsson átti einmitt sjálft Þjóðhátíðarlagið í fyrra.

Fyrir hafði verið tilkynnt um að Bubbi & Dimma, FM Belfast, AmabAdamA, Páll Óskar, Ný Dönsk, Sálin han Jóns míns, Júníus Meyvant, Land og synir, Sóldögg, Maus og FM95BLÖ kæmu fram. 

Miðasala er á fullu inn á dalurinn.is en verslunarmannahelgin þetta árið hittir á 31. júlí - 2. ágúst.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×