Innlent

Engum samningum þinglýst

fanney birna jónsdóttir skrifar
Engar fyrirtökur eða afgreiðslur eru hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vegna verkfalls lögfræðinga.
Engar fyrirtökur eða afgreiðslur eru hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vegna verkfalls lögfræðinga. Fréttablaðið/Vilhelm
Vegna verkfalls lögfræðinga hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu var engum kaupsamningum þinglýst í síðustu viku. Þuríður Árnadóttir, sviðsstjóri hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, segir verkfallið hafa heilmikil áhrif.

„Á flestum fagsviðum embættisins eru engar fyrirtökur eða afgreiðslur. Það er engum skjölum þinglýst eða aflýst, það eru engar fyrirtökur í fullnustugerðum, fjárnám eða uppboð og engar fyrirtökur í skilnaðarmálum eða hjá dánarbúum, engin ættleiðingarmál afgreidd og svo framvegis,“ segir Þuríður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×