Glamour

Englarnir mæta til leiks

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tískusýning undirfatamerkisins Victoria´s Secret fer fram í Grand Palais í París í kvöld og verður mikið um dýrðir eins og þeim er von og vísa.

Fyrirsæturnar mættu til leiks í morgun undir vökulum augum ljósmyndara enda hefur undirfatamerkinu tekist að láta sviðsljósið vera á þessum viðburði í kvöld.

Bella Hadid, forsíðufyrirsæta Glamour í september, gengur sína fyrstu tískusýningu fyrir undifatamerkið en systir hennar Gigi verður líka með. Einnig koma fram nokkrir af vinsælustu tónlistarmönnum í heimi í dag eins og Lady Gaga, Bruno Mars og The Weekend. 

Talið er að það verði mikil öryggisgæsla í kringum viðburðinn í kvöld en þetta verður spennando að fylgjast með!

Izabel Goulart mætir í spariklæðunum.
Gigi Hadid var í ögn þægilegri fatnaði.
Bella Hadid er í að taka þátt í sýningunni í fyrsta sinn.
Irina Shayk með sólgleraugu.
Alessandra Ambrosio veifar til ljósmyndaranna.
Breska fyrirsætan Lily Donaldson.
Hér fer tískusýningin fram.





×