Menning

Englar í útvarpinu

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Guðrún Helgadóttir höfundur sögunnar Sitji guðs englar fagnar fjörutíu ára rithöfundarferli í ár.
Guðrún Helgadóttir höfundur sögunnar Sitji guðs englar fagnar fjörutíu ára rithöfundarferli í ár.
Fjölskylduleikritið Sitji guðs englar verður flutt í Útvarpsleikhúsinu yfir jólahátíðina. Leikritið byggir á sögu hins ástsæla rithöfundar Guðrúnar Helgadóttur og er í sex þáttum. Það verður flutt sex daga í röð, einn þáttur á dag, frá aðfangadegi til og með mánudeginum 29. desember, klukkan 15 alla dagana.



Leikgerðin er eftir Illuga Jökulsson og leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. Tónlist er eftir Stefán S. Stefánsson og um hljóðvinnslu sá Grétar Ævarsson. Fjölmargir leikarar taka þátt í flutningnum, bæði fullorðnir og börn, en í aðalhlutverkum eru: Rúrik Haraldsson, Þóra Friðriksdóttir, Edda Heiðrún Backman, Valdimar Örn Flygenring og Brynhildur Guðjónsdóttir. Upptakan er frá árinu 1999.



Endurflutningur verksins er meðal annars í tilefni af því að Guðrún Helgadóttir fagnar á þessu ári 40 ára rithöfundarafmæli sínu.



Í Sitji guðs englar kynnast hlustendur stórmerkilegri fjölskyldu í Firðinum en þó mest hinni alvörugefnu Heiðu. Úti í heimi geisar stríð, amerískir hermenn þramma um bæinn og mannlífið tekur öðrum breytingum. Í heimi barnanna eiga sér líka stað miklar sviptingar, gáskafull gleðin ræður ríkjum en sorgin nær að varpa skugga sínum á leik þeirra.

Undir glaðværu yfirborði sögunnar er veruleiki stríðsáranna sem börnin skynja á allt annan hátt en fullorðnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×