Heilsa

Engir slitnir endar með banananæringu

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty

Til þess að halda hárinu heilbigðu og óslitnu er mikilvægt að klippa það reglulega og halda því vel nærðu þess á milli. Hárblásarar, hárlitur og önnur efni sem við notum í hárið fara illa með það og þurrka það.

Flestar hárnæringar innihalda kemísk efni sem geta verið skaðleg heilsunni og náttúrunni. Til þess að forðast að bera á sig óæskileg eiturefni er sniðug og ódýr lausn að búa til þær snyrtivörur sem maður getur sjálfur.

Hér er uppskrift af dásamlegri bananahárnæringu sem nærir hárið vel og kemur í veg fyrir slitna enda. Hún er alveg án allra aukaefna og kostar lítið að búa til.

Hráefni sem þarf í næringuna:

1 stór banani

1 egg

1 msk lífræn kókosolía

3 msk lífrænt hunang



Aðferð:

1.Stappið bananann vel og hrærið saman við eggið. Blandið kókosolíunni og hunanginu saman við og hrærið næringuna vel saman í skál.

2. Berið í hárið og hársvörð og bíðið í 30 mín.

3. Skolið næringuna úr með köldu vatni og þvoið svo hárið með sjampói.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×