Körfubolti

Enginn Stefánsson upp á stigatöflunni

Óskar Ófeigur Jónsson í London skrifar
Jón Arnór verður með á morgun.
Jón Arnór verður með á morgun. vísir/óój
Jón Arnór Stefánsson verður eins og flestir vita með íslenska körfuboltalandsliðinu á móti Bretum í Koparkassanum í London annað kvöld en þar geta íslensku strákarnir tryggt sér annað sætið í riðlunum og mögulega sæti á EM með sigri.

Bretar fengu ekki að sjá Jón Arnór Stefánsson spila í fyrri leiknum sem Ísland vann með 13 stiga mun í Laugardalshöllinni.

Íslenska liðið æfði í fyrsta sinn í Koparkassanum í kvöld en þar mun leikurinn fara fram á morgun og hefst hann klukkan 18.35 að íslenskum tíma.

Það vakti athygli þegar íslenski hópurinn mætti í Höllina í kvöld að búið var að skrifa upp leikmannahópa liðanna á stigatöflu leiksins. Þar var hinsvegar enginn Jón Arnór Stefánsson.

Jón Arnór var ekki með í tveimur fyrstu leikjunum en bættist óvænt við fyrir leikinn á morgun.

Hvort Bretarnir hafi gert ráð fyrir slíkum ás í ermi íslenska landsliðsþjálfarans er óvíst en Bretar þurfa í það minnsta að laga stigatöfluna fyrir leikinn annað kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×