Enginn smitaður af svínaflensu á Íslandi 30. apríl 2009 04:00 Svínaflensan virðist vera mun grimmari í Mexíkó en öðrum löndum. Um tíma í gær var talið að barn í Texas hefði látist úr henni. Barnið reyndist hins vegar hafa komið þangað frá fyrrnefnda landinu, þar sem allmargir hafa látist af völdum flensunnar.
Sýni sem tekin hafa verið úr fimm einstaklingum vegna gruns um að þeir gætu verið með svínaflensu reyndust neikvæð þegar niðurstöður lágu fyrir í gær, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis. Síðdegis í gær voru engar vísbendingar um að flensan væri komin hingað. Enginn hafði leitað til inflúensumóttökunnar, sem komið hefur verið upp í Leifsstöð, um miðjan dag í gær, að sögn sóttvarnalæknis. Þá höfðu engar fregnir borist af því að fólk hefði leitað til lækna í gærdag vegna flensueinkenna. Heilbrigðisyfirvöld og almannavarnir Ríkislögreglustjóra starfa nú samkvæmt hættustigi vegna svínaflensunnar sem nú herjar víða um lönd. Í gær var komið upp inflúensu-móttöku í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli sem er mönnuð heilbrigðisstarfsmönnum frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ferðamenn geta leitað þangað hafi þeir inflúensulík einkenni. „Það er mjög mikilvægt að móttakan sé til staðar og að fólk viti af henni,“ segir sóttvarnalæknir. Ekki verður gripið til innkomuskimunar í flugstöðinni, þar sem fullvíst er talið að slík aðgerð þjóni engum tilgangi. Upplýsingum hefur verið miðlað til heilbrigðisþjónustu og viðbragðsaðila. Heilbrigðisstarfsmenn hafa verið hvattir til þess að senda sýni frá sjúklingum með inflúensulík einkenni til greiningar og hefur leiðbeiningum um notkun veirulyfja verið dreift. Stöðug vöktun er vegna flensunnar. Óhjákvæmilegt er að margir farþegar sem koma til landsins frá Bandaríkjunum og Mexíkó muni leita læknis vegna ýmissa einkenna. Grunsamleg tilfelli byggjast á skoðun læknis og það er síðan staðfest með því að sýna fram á sýkingu á rannsóknarstofu. Mikið ósamræmi er í sjúkdómsmynd svínainflúensunnar í Mexíkó miðað við önnur ríki, að sögn sóttvarnalæknis. jss@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira