Enginn saknar áramótaávarpsins 28. desember 2006 10:00 Páll Magnússon hyggst flytja landsmönnum stutta áramótakveðju en útilokar ekki endurkomu áramótaávarpsins „
Ég hef ekki orðið var við þann söknuð," segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Í stjórnartíð hans í Efstaleiti hefur hið umdeilda áramótaávarp verið lagt af og þykir sumum það miður. „Við höfðum þann háttinn á í fyrra að vera ekki með ávarp frá útvarpsstjóra og endurtökum það núna," bætir hann við. „Ef ég verð hins vegar var við að menn sakni þessa ávarps mikið og vilji ólmir fá að heyra skoðanir mínar á gamlárskvöldi er ekki útilokað að við tökum málið upp aftur en annars er áramótaávarpið úr sögunni," segir Páll sem þó flytur landsmönnum stutta áramótakveðju rétt áður en nýtt ár hefst. „Þar þakka ég landsmönnum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og óska þeim velfarnaðar á því nýja," upplýsir Páll. Úvarpsstjórinn segir að á eftir áramótaskaupinu verði sjónvarpað nýlegri upptöku frá tónleikum Frostrósa í Hallgrímskirkju þar sem þær Petula Clark og Sissel Kyrkjebo eru meðal flytjenda en þær sungu fyrir fullu húsi í Laugardalshöll eins og frægt er orðið. Stutt hlé verður gert þegar niðurtalning fyrir nýtt ár hefst og kveðja Páls flutt en svo halda tónleikarnir áfram. Í fyrra skeiðaði forveri Páls í starfi, Markús Örn Antonsson, um tónlistalíf Suðurlands á árum áður í þessu dagskrárplássi og útilokar útvarpsstjórinn ekki að framhald verði á slíkri dagskrárgerð á komandi árum þótt hún verði að víkja fyrir erlendu dívunum að þessu sinni. Markús Örn var sá síðasti sem flutti landsmönnum hið hefðbundna áramótaávarp. .
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira