Fótbolti

Enginn Ronaldo, enginn Bale en ekkert vesen hjá Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Benzema skoraði tvö og lagði upp eitt.
Benzema skoraði tvö og lagði upp eitt. Vísir/Getty
Þrátt fyrir að vera án Cristianos Ronaldo og Gareths Bale átti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með að leggja Eibar að velli í dag. Lokatölur 1-4, Real Madrid í vil.

Með sigrinum komust Madrídingar á topp spænsku úrvalsdeildarinnar en Barcelona getur endurheimt toppsætið með sigri á Celta Vigo í kvöld. Real Madrid á þó leik til góða á Barcelona.

Karim Benzema var í aðalhlutverki í fyrri hálfleik þar sem hann skoraði tvö mörk og lagði auk þess upp mark fyrir James Rodríguez.

Staðan var 0-3 í hálfleik og eftir klukkutíma leik bætti Marco Asensio fjórða markinu við.

Ruben Pena lagaði stöðuna á 72. mínútu en nær komst Eibar ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×