Innlent

Enginn rekinn úr Vínarkórnum þótt hann fari í mútur

Heimir Már Pétursson skrifar
Stjórnandi Vínardrengjakórsins, sem hélt tvenna tónleika í Reykjavík um helgina, segir þennan heimsfræga kór opinn öllum drengjum sem vilji syngja. Kórinn hafi í fimm hundruð ára sögu sinni alið af sér mikinn fjölda af virtum tónlistarmönnum.

Vínardrengjakórinn er í raun fjórir tuttugu og fimm drengja kórar stráka á aldrinum níu til fjórtán ára. Manolo Cagnin er Ítali og hefur stjórnað kórnum í sjö ár. Hann segir mörg frægustu tónskáld heims hafa komið að kórstarfinu í margra alda sögu hans.

Sjá einnig: Englaraddir Vínardrengja óma í Hörpu

„Margir stórkostlegir tónlistarmenn og tónskáld hafa unnið með kórnum. Schubert var kórdrengur á sínum tíma. Bæði Joseph og Michael Haydn unnu með kórnum. Mozart og Beethoven unnu með kórnum. Mikill fjöldi stórstjarna í tónlistarsögunni hefur unnið með Vínardrengjakórnum eða verið í kórnum sem drengir,“ segir Manolo. Í dag séu fyrrverandi kórdrengir víðs vegar um heiminn og á ýmsum sviðum tónlistarheimsins.

Kórinn syngur jöfnum höndum klassísk verk, þjóðlög og popplög. Í tilefni heimsóknarinnar hingað til lands reyndu strákarnir sig á laginu Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð Gríms Thomsen og fengu við það á æfingu í gær aðstoð frá Eddu Austmann söngkonu og markaðsstjóra Hörpu, eins og sjá má í sjónvarpsfréttinni hér fyrir ofan.

Manolo segir að þrátt fyrir aga í tónlistaruppeldinu sé kórinn eins og samheldin fjölskylda og það séu t.d. engin endalok þótt strákarnir fari í mútur. Þeir fái þá bara stuðning og raddþjálfun.

„Við höfum félagslegu hlutverki að gegna og það er líka mjög mikilvægt. Enginn yfirgefur kórinn minn vegna erfiðleika með röddina eða vegna þess að röddin er að breytast. Það er náttúran, það er eðlilegt og það er allt í lagi,“ segir Manolo Cagnin stjórnandi Vínardrengjakórsins.


Tengdar fréttir

Englaraddir Vínardrengja óma í Hörpu

Íslenskur drengur syngur með Vínardrengjakórnum í Hörpu. Kórinn stofnaður um svipað leiti og Þjóðveldið leið undir lok á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×