Viðskipti innlent

Enginn munur á gæðum en næstum fimmtugfaldur verðmunur

Sveinn Arnarsson skrifar
Icepharma er dreifingaraðili á Íslandi.
Icepharma er dreifingaraðili á Íslandi.
B-vítamín stungulyfi sem hækkað hefur um 4.700 prósent fyrir það eina að fá markaðsleyfi hér á landi er dreift af Icepharma og framleitt af Abcur í Svíþjóð. SÁÁ gat fyrir markaðsleyfi Icepharma keypt lyfið á 525 krónur af heildsölunni Parlogis en kaupir það nú af Icepharma á um 25.000 krónur.

B-vítamín stungulyfið sem notað hefur verið á Vogi á síðustu misserum er dæmi um lyf sem selt hefur verið án markaðsleyfis á grundvelli undanþágu. Lögbundið er að lyf skuli ekki seld hér á landi nema þau hafi áður fengið markaðsleyfi sem Lyfjastofnun veitir að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Við sérstakar aðstæður getur Lyfjastofnun veitt undanþágu frá markaðsleyfi fyrir sölu lyfs, ef enginn aðili hefur sótt um markaðsleyfi.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.vísir/pjetur
„Lyfjastofnun fór af stað og hafði samband við einn birgjann og óskaði eftir því að þeir skráðu lyfið hér á landi,“ segir Bessi Jóhannesson, framkvæmdastjóri lyfjasviðs Icepharma. „Það er markmið lyfjastofnunar að skrá lyf á Íslandi. Því fylgir neytendavernd með íslenskum lyfseðlum og íslenskum pakkningum.“

Bessi bætir við að í öllum aðalatriðum sé lyfið það sama. „Í rauninni er þetta nákvæmlega sama lyfið. Í þessu tilviki skráir aðili það hér á markað og fær leyfi fyrir því og verðleggur vöruna sem er svo samþykkt af lyfjagreiðslunefnd,“ segir Bessi. Um leið og markaðsleyfi er fengið hér á landi fyrir lyfi er því ekki leyfilegt að kaupa hitt lyfið sem kostaði um 500 krónur.

Þórarinn Tyrfingsson sagði í viðtali við Fréttablaðið í gær að heilbrigðisráðuneytið hafi gefið einu fyrirtæki einkaleyfi á sölu lyfsins hér á landi og því hafi verðið hækkað svona mikið. Velferðarráðuneytið segir það hins vegar rangt hjá Þórarni. Kristján Þór Júlíusson segir fákeppni vera aðal­orsök verðlagningarinnar. „Heilbrigðisyfirvöld verða að fara eftir settum lögum og reglum á þessu sviði sem öðrum. Hins vegar er fákeppnin sem við búum við alvarlegt umhugsunarefni. Hún stendur raunverulegri samkeppni fyrir þrifum og ég tel að við ættum nú að beina sjónum okkar að því hvort álagning á lyfjamarkaðinum sé raunhæf,“ segir Kristján Þór. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×