Innlent

Enginn gisti fangageymslu í nótt

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/stefán
Í skýrslu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að enginn hafi þurft að gista fangageymslu í nótt og nokkuð rólegt hafi verið.

Tveir aðilar voru aftur á móti teknir gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna en voru báðir látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku. Þá voru þrír teknir vegna gruns um ölvun við akstur.

Tilkynnt var um þjófnað á áfengi af bar um klukkan þrjú í nótt en þjófurinn komst undan.

Fram kemur í skeyti lögreglunnar að „enginn gisti fangageymslu í nótt sem var mjög ánægjulegt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×