Innlent

Enginn fundur á dagskrá hjá hjúkrunarfræðingum

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Ekki hefur verið boðað til nýs samningafundar í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins.
Ekki hefur verið boðað til nýs samningafundar í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins. Vísir/Vilhelm
Enginn nýr samningafundur hefur enn verið boðaður í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins. Samninganefndirnar hittust síðast á föstudaginn.

Tvö þúsund og eitt hundrað hjúkrunarfræðingar lögðu niður störf á miðnætti á þriðjudaginn í síðustu viku. Verkfallsaðgerðirnar hafa haft mikil áhrif á heilbrigðisstofanir um allt land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×