Engin uppgjöf hjá Alonso og Ferrari

Vísir Formúlan 30. ágúst 2010 09:20
Fernando Alonso er ekki búinn að gefa frá sér möguleika á meistaratitlinum í ár.
Fernando Alonso er ekki búinn að gefa frá sér möguleika á meistaratitlinum í ár. Mynd: Getty Images
Fernando Alonso telur enn möguleika á að hann geti orðið heimsmeistari, þó hann hafi fallið úr leik á Spa brautinni í gær eftir að hafa misst bíl sinn útaf í bleytu.

Alonso er í fimmta sæti í stigamótinu með 141 stig, en Lewis Hamilton er með 182, Mark Webber 179, Sebastian Vettel 151 og Jenson Button 147.

"Það er enn möguleiki. Það eru sömu fimm ökumennirnir sem eiga möguleika og við eigum 50% möguleika, rétt eins og fyrir mótið. Fyrir mótið voru sjö mót, núna eru sex og sá sem gengur bestu í þeim verður meistari", sagði Alonso í frétt á autosport.com.

"Í fyrstu sjö mótunum gekk okkur ekki nógu vel og öðrum gekk betur. Jenson, Vettel og mér gekk ekki vel í fyrstu sjö mótunum, þannig að við verðum að standa okkur betur í þeim sex sem eftir eru."

"Það náðu aðeins tveir í titilslagnum stigum og kannski verði næsta mót þveröfugt og við verðum í sömu stöðu og áður, þar sem lítill munur var á milli keppenda", sagði Alonso eftir keppnina í gær.

Stefano Domenicali, yfirmaður Ferrari benti á að Kimi Raikkönen hefði unnið upp sautján stiga forskot Lewis Hamilton í tveimur lokamótunum árið 2007.

"Þettta var ekki góð helgi fyrir okkur og staðan í báðum stigamótum er erfiðari, en það er ekki ómögulegt að ná markmiðum okkar. Fyrir þá sem eru með skammtímaminni, þá vorum við í verri stöðu fyrir þremur árum og við vitum hvernig það fór", sagði Domenicali.

Fleiri fréttir - Formúlan

Formúlan 10. feb. 2012 16:00

Aftur efasemdir um mótið í Barein - Ecclestone alveg sama

Vaxandi pressa hefur verið á skipuleggjendur Formúlu 1 mótarað...  

Meira
Formúlan 09. feb. 2012 20:30

Ferrari ósátt með nýja bílinn á æfingum

Tæknistjóri Ferrari liðsins, Pat Fry, sagðist ekki vera ánægður með stöðu Ferrari liðsins ...  

Meira
Formúlan 09. feb. 2012 19:09

Paul di Resta: Furðulegu bílarnir betri í ár

Skoski ökuþórinn Paul di Resta hjá Force India liðinu sagði í viðtali á Spáni í dag að nýj...  

Meira
Formúlan 09. feb. 2012 17:30

Rosberg fljótastur en heimsmeistarinn þriðji

Nico Rosberg á Mercedes bíl síðasta árs var fljótastur á þriðja degi æfinga á Jerez-brauti...  

Meira
Formúlan 08. feb. 2012 16:39

Schumacher fljótastur á æfingum dagsins

Michael Schumacher, á 2011 árgerð Mercedes bílsins, var fljótastur á æfingum F1 liða á Jer...  

Meira
Formúlan 06. feb. 2012 23:00

Barrichello íhugar tilboð frá Indy kappakstursliði

Rubens Barrichello hefur á undanförnum dögum tekið þátt í æfingaakstri hjá KV Racing Techn...  

Meira
Formúlan 06. feb. 2012 17:00

Hamilton yfirgefur Sviss og flytur til Mónakó

Breski formúluökumaðurinn Lewis Hamilton ætlar að flytjast búferlum frá Sviss til Mónakó e...  

Meira
Formúlan 05. feb. 2012 19:45

Hamilton: Ég missti alla einbeitingu á síðasta tímabili

Formúli 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur nú stigið fram í sviðsljósið og viðurkennt að han...  

Meira
Formúlan 01. jan. 2012 23:15

Hamilton á sér leynda tónlistardrauma

Ökuþórinn og Formúlu 1-kappinn Lewis Hamilton er í enskum fjölmiðlum í dag sagður hafa var...  

Meira
Formúlan 23. des. 2011 13:00

Button: Finnst að okkar tími sé að koma

Jenson Button varð í öðru sæti í heimsmeistaramótinu í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili á...  

Meira
Formúlan 22. des. 2011 10:15

Raikkönen: Býst við að fólk hafi saknað mín!

Kimi Raikkönen mætir aftur til keppni í Formúlu 1 á næsta ári, eftir tveggja ára hlé frá í...  

Meira
Formúlan 21. des. 2011 13:30

Alonso fagnar endurkomu Raikkönen

Fernando Alonso, ökumaður Ferrari fagnar því að Kimi Raikkönen er að fara keppa aftur í Fo...  

Meira
Formúlan 16. des. 2011 21:29

Hülkenberg og Di Resta keppa með Force India 2012

Force India Formúlu 1 liðið staðfesti í dag að Nico Hülkenberg og Paul Di Resta keppa með...  

Meira
Formúlan 16. des. 2011 15:15

Stanslaust hringt í nýliðann Vergne eftir ráðningu

Jean Eric Vergne verður nýliði sem keppnisökumaður í Formúlu 1 á næsta ári með Torro Rosso...  

Meira
Formúlan 15. des. 2011 11:00

Staða átta Formúlu 1 ökumanna óljós fyrir 2012

Vegna tilkynningar Torro Rosso um nýja ökumenn liðsins í gær, þá er ljóst að aðeins fjögur...  

Meira
Formúlan 15. des. 2011 02:47

Torro Rosso skiptir um keppnisökumenn fyrir næsta ár

Torro Rosso liðið ítalska hefur ákveðið að skipta um keppnisökumenn fyrir næsta keppnistím...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Formúlan / Engin uppgjöf hjá Alonso og Ferrari