Viðskipti innlent

Engin uppgjöf á Djúpavogi og fiskvinnslan endurreist

Kristján Már Unnarsson skrifar
Tekist hefur að endurheimta tvo þriðju hluta þeirra fiskvinnslustarfa sem töpuðust á Djúpavogi þegar Vísir í Grindavík ákvað að loka í fyrra. Samstöðu heimamanna er þakkað.

Tilkynningin í fyrravor þótti reiðarslag fyrir Djúpavog enda var fiskvinnsla Vísis stærsta atvinnufyrirtækið. Skilaboðin til starfsmanna þóttu stuðandi; þið getið bara flutt öll til Grindavíkur. Á Djúpavogi neituðu menn hins vegar að gefast upp.

Í fréttum Stöðvar 2 sést línubáturinn Sunnutindur SU, áður Þórkatla GK, koma inn með afla til vinnslu í heimabyggð en fyrirtækið Búlandstindur keypti hann til Djúpavogs í vor til að styðja við fiskvinnsluna. Elís Grétarsson, framkvæmdastjóri Búlandstinds ehf., segir að samið hafi verið við Vísi um að fá húsin. Tæki og tól hafi verið keypt til að halda áfram vinnslunni.

Frá Djúpavogi við Berufjörð. Í þorpinu búa nú um 330 manns en í sveitarfélaginu öllu um 420 manns.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Fimm bátar landa nú reglulega hjá Búlandstindi. Fyrirtækið er í eigu Ósness á Djúpavogi og Fiskeldis Austfjarða en það vinnur einnig eldisfisk. Elís segir að áður hafi starfað yfir 50 manns hjá Vísi og nú séu starfsmenn orðnir um 35 talsins. 

„Það hefur tekist ótrúlega vel að vinna úr þessu og það sýnir hvað samfélagið er í raun sterkt í grunninn,“ segir Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps.

Hér er byggðakvóti lykilþáttur, að sögn Elíss. „Það vantar svolítið mikið upp á aflaheimildirnar. Það þyrfti að vera minnst helmingi meira, þannig að vel ætti að vera,“ segir Elís.

Andrés oddviti bendir á að 50 manns hafi flutt burt á einu bretti. Við svipaðar aðstæður hafi það gerst í mörgum öðrum samfélögum að húsin, sem fólkið flutti úr, hafi selst sem sumarhús.

Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
„En hér gerðist það ekki. Hér hafa húsin selst, ungt fjölskyldufólk, kraftmikið, verið að kaupa þessi hús. Þannig að þetta sýnir fyrst og síðast hvað íbúarnir hafa mikla trú á byggðinni sinni. Þannig að hér er sko engin uppgjöf,“ segir Andrés. 

Djúpivogur er því ekki deyjandi samfélag: „Nei, nei. Djúpivogur verður hérna áfram, hef ég trú á,“ segir framkvæmdastjóri Búlandstinds.


Tengdar fréttir

Vísismálið áminning til stjórnvalda

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar segir útilokað fyrir eigendur Vísis hf. að loka starfsstöðvum á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi, án samráðs við þá sem tengist málinu.

Þeir fara með kvótann á einu bretti burt

Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags á Húsavík, segir bæjarfélagið í áfalli eftir að tilkynnt var um lokun fiskvinnslunnar í bænum.

Íbúar Djúpavogs í stríð við stjórnvöld: "Við neitum að gefast upp“

Sveitastjórn Djúpavogs fer óhefðbundnar leiðir til þess að mótmæla áhrifum fiskveiðistjórnunarkerfisins á sveitarfélagið. Tveir kvikmyndagerðarmenn, sem ólust þar upp, hafa nú gert áhrifaríkt myndband sem sýnir samstöðu íbúa Djúpavogs í baráttunni gegn stjórnvöldum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×