Viðskipti innlent

Engin svör berast frá skilanefnd Glitnis

Svavar Hávarðsson skrifar
Glitnir var þjóðnýttur 29. september 2008 og féll 7. október.
Glitnir var þjóðnýttur 29. september 2008 og féll 7. október. Vísir/Heiða
Fyrrverandi formenn skilanefndar Glitnis, þau Steinunn Guðbjartsdóttir og Árni Tómasson, geta ekki fjallað um einstök mál tengd Glitni, enda þeim óheimilt. Það sama á við um Ragnar Björgvinsson, yfirlögfræðing Glitnis HoldCo, sem svaraði því til við skriflegri fyrirspurn Fréttablaðsins að hann geti ekki tjáð sig um einkamálefni einstakra viðskiptavina.

Eins og Fréttablaðið sagði frá í gær þá hafði skilanefnd Glitnis til skoðunar úttektir nokkurra félaga og einstaklinga á háum fjárhæðum úr peningamarkaðssjóði Glitnis, Sjóði 9, í mars 2010, með það að augnamiði að kanna hvort riftun viðskiptanna kæmi til greina. Ástæðan var tímasetningar viðskiptanna stuttu fyrir þjóðnýtingu Glitnis 29. september og dagana fyrir hrun bankans 7. október árið 2008.

Um háar upphæðir var að ræða eða 3,1 milljarður þegar allt er talið. Einn þriðji af þeirri upphæð var vegna úttekta Guðbjargar Matthíasdóttur, athafnakonu og stærsta eiganda Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Einnig var um háar fjárhæðir að ræða í tilviki Benedikts Sveinssonar athafnamanns.

Fyrirspurnir Fréttablaðsins og fréttastofu Stöðvar 2 til skilanefndarformannanna og yfirlögfræðings Glitnis HoldCo lutu að því að fá upplýsingar um framhald málsins innan skilanefndarinnar –um hver niðurstaða þessarar athugunar hennar var og hvort einhverjum af þeim viðskiptum sem tiltekin voru í skjalinu sem Fréttablaðið hefur undir höndum var rift.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×