Innlent

Engin stefnubreyting gagnvart ESB

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Formaður Samfylkingarinnar segist í engu hafa skipt um skoðun varðandi það að hagsmunum Íslands sé best borgið innan Evrópusambandsins
Formaður Samfylkingarinnar segist í engu hafa skipt um skoðun varðandi það að hagsmunum Íslands sé best borgið innan Evrópusambandsins Vísir/GVA
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segist í engu hafa skipt um skoðun varðandi það að hagsmunum Íslands sé best borgið innan Evrópusambandsins. Hann muni berjast fyrir því að aðildarviðræður verði kláraðar, komist hann í ríkisstjórn.



Sjónvarpsstöðin Hringbraut birti í morgun frétt þar sem fullyrt var að Árni Páll hefði nú miklar efasemdir um að Ísland ætti að gerast aðili að ESB og teldi að hagsmunum landsins væri mögulega best borgið með EES-samstarfið eitt að vopni. Árni Páll segir þetta rangtúlkun á orðum sínum, en viðtalið verður sýnt í kvöld.



„Ég sagði einfaldlega að ég nærði með mér efasemdir um aðild að ESB reglulega og hefði lengi gert, árum saman. Ég minnti á að ég hefði skrifað greinarflokk í Fréttablaðið um það árið 2012 og þar leitað svara við spurningunni um hvort aðild að ESB væri rétti kosturinn fyrir Ísland. Þetta er spurning sem verður að meta út frá íslenskum hagsmunum og því eðlilegt að endurmeta reglulega hagsmunamatið sem að baki liggur.



Niðurstaða mín var skýr þá og hún er sú sama nú, að það séu allar líkur á að þetta sé besti kosturinn fyrir Ísland.“



Líkur, segirðu. Ertu ekki fullviss um það?



„Það er stefna Samfylkingarinnar að við viljum fá að sjá samning og taka afstöðu til hans. Það eru allar líkur á því að sá samningur verði Íslandi hagstæður.“



Árni Páll segir Samfylkinguna að sjálfsögðu vilja klára aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann hafi verið spurður út í aðra möguleika, hvort EES kæmi til greina sem varanleg lausn einvörðungu.



„Ég tel það ekki mögulegt nema með einhverri lausn í gjaldmiðilsmálum og sagði það í viðtalinu. Gjaldmiðillinn er stóri þátturinn sem hefur áhrif, það stóra sem okkur vantar.“



Munt þú berjast fyrir aðild að ESB ef þú kemst í ríkisstjórn?



„Já. Ég tel það enn sem fyrr rétt og mikilvægt að halda áfram með aðildarumræðurnar og það sé nákvæmlega það sem máli skiptir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×