Erlent

Engin samstaða um nýja byssulöggjöf

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
John Cornyn, þingmaður repúblikana
John Cornyn, þingmaður repúblikana
Öldungadeild Bandaríkjaþings hafnaði fjórum nýjum frumvörpum um herta byssulöggjöf í fyrrinótt. Frumvörpin voru lögð fram í kjölfar skotárásarinnar í Orlando sem kostaði 49 manns lífið. Demókratar lögðu fram tvö frumvörp og repúblikanar tvö og kusu þingmenn demókrata á móti frumvörpum repúblikana og öfugt.

Frumvörp demókrata sneru að aukinni þörf á bakgrunnsrannsókn á byssukaupendum og banni við því að fólk á lista yfir mögulega hryðjuverkamenn gæti keypt skotvopn. Þá sneru frumvörp repúblikana annars vegar að því að dómsmálaráðherra fengi heimildir til að setja byssukaup manneskju á sama lista á ís á meðan dómari ákvarðaði hvort viðkomandi mætti kaupa vopnið og hins vegar að því að alríkislögreglu (FBI) yrði gert kunnugt um grunaða hryðjuverkamenn sem keyptu byssu án þess þó að komið yrði í veg fyrir kaupin.

Chris Murphy, þingmaður demókrata
Chris Murphy, flutningsmaður annars frumvarpa demókrata, sagði niðurstöðuna ekki koma sér á óvart. „Atkvæðagreiðslan vekur hjá mér hrylling en kemur mér ekki á óvart,“ sagði Murphy og bætti við: „Ég trúi því ekki að lýðræðið leyfi þessu þingi að vera úr öllum tengslum við vilja þjóðarinnar lengi.“

Þá sagði John Cornyn, þingmaður repúblikana, að hert byssulöggjöf væri ekki svarið. „Samstarfsmenn okkar vilja láta þetta snúast um byssulöggjöf þegar það sem við ættum að láta þetta snúast um er baráttan við að útrýma öfgafullum íslamisma sem er orsök þess sem gerðist í Orlando,“ sagði Cornyn. Hann sagði samstarfsmenn sína ætla að slá á sjúkdómseinkenni án þess að berjast við réttan sjúkdóm.

Demókratar sögðu repúblikana hins vegar vera að stuðla að því að hryðjuverkamenn gætu keypt byssur með því að fella frumvörpin. „Repúblikanar hafa ákveðið að selja Íslamska ríkinu byssur,“ sagði Elizabeth Warren, þingmaður demókrata.

Repúblikaninn Cornyn sagði hins vegar að það væri einfaldlega ekki hægt að banna fólki að kaupa byssur án nógu góðrar ástæðu þar sem rétturinn til vopnaburðar væri stjórnarskrárvarinn í öðrum viðauka stjórnarskrárinnar.

Fjölmiðlar vestanhafs tóku hins vegar undir með demókrötum. Þannig sagði blaðamaður Washington Post að repúblikanar verndi rétt hryðjuverkamanna til vopnaburðar og kallaði hann aðstæðurnar fáránlegar. Í frétt USA Today var atkvæðagreiðslan kölluð „ótrúlegur heigulsháttur“ og í leiðara blaðsins voru þingmenn sagðir mannleysur. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. júní 2016




Fleiri fréttir

Sjá meira


×