Innlent

Engin merki sjást um yfirvofandi eldgos

Birgir Olgeirsson skrifar
Hér er Svava Björk Þorláksdóttir náttúruvársérfræðingur að handmæla fremur fúlt vatn í Múlakvísl í gærkvöldi.
Hér er Svava Björk Þorláksdóttir náttúruvársérfræðingur að handmæla fremur fúlt vatn í Múlakvísl í gærkvöldi. Veðurstofan/Njáll Fannar Reynisson
Talsverð skjálftavirkni hefur verið í Kötluösku síðan í júní, sem Veðurstofa Íslands segir vera hefðbundna sumarhegðun Kötlu. Samfara skjálftavirkninni hefur verið viðvarandi há rafleiðni í Múlakvísl í allt sumar. Þá hafa margar tilkynningar borist til Veðurstofunnar um brennisteinslykt þaðan.

Í kjölfar snarprar skjálftahrinu í Kötluöskjunni 29. ágúst síðastliðinn voru gerðar gasmælingar við Múlakvísl í gær sem sýndu talsverðan styrk breinnisteinsdíoxíð og brennisteinsvetnis.

Mælingin var endurtekin í dag og sýndi hún svipuð gildi. Veðurstofan segir gasmengun við jarðhitasvæði ekki óalgenga og þar sem í Múlakvísl rennur vatn úr jarðhitakötlum í Kötlu er við því að búast að gas mælist við ána.

Mælingarnar hafa sýnt há gildi og mælir þess vegna Veðurstofan ekki með því að fólk dvelji lengi nálægt bökkum Múlakvíslar að svo stöddu. Ekki er vitað hvort þessi gasmengun tengist skjálftahrinunni. Verið er að setja upp nema til að mæla samfellt gas við ána svo hægt sé að fylgjast betur með þróuninni. 

Stærsti skjálftinn eftir meginhrinuna var af stærð 3,3 og varð síðdegis í gær. Ekki virðist vera áframhald á þessari skjálftavirkni og engin merki sjást um yfirvofandi eldgos. Katla er vel vöktuð allan sólarhringinn og mun Veðurstofan tilkynna breytingar þegar þeirra verður vart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×