Engin mengun mælist í vatnsveitu Súðvíkinga Atli Ísleifsson skrifar 28. september 2016 11:24 Íbúar Súðavíkur voru beðnir um að sjóða allt neysluvatn í varúðarskyni.
Ný sýni sem tekin voru í morgun benda til að enga mengun sé að finna í vatnsveitu Súðavíkur. Fyrr í vikunni barst tilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða um að E. coli mengun hefði fundist í vatnssýni við hefðbundið eftirlit. Í tilkynningu frá sveitarstjóra Súðavíkur segir að vatnssýnið hafi verið staðbundið og haft nokkuð veikt gildi. „Í kjölfarið sendi sveitarfélagið út tilkynningu til að gæta fyllstu varúðar og öryggis um að nauðsynlegt væri að sjóða neysluvatn á meðan mengunin væri rannsökuð betur og komið í veg fyrir hana. Þá óskaði sveitarfélagið eftir því að seinni sýni yrðu tekin víðavegar um bæinn, í gömlu byggð Súðavíkur og þeirri nýrri. Í morgun leiddu seinni sýni í ljós að enga mengun er að finna í vatnsveitu Súðavíkur. Ljóst er að mengunin var staðbundin og hefur þegar verið brugðist við henni. Verður fylgst með staðnum í kjölfarið með tilliti til þessa. Vatnsveita Súðavíkur sækir neysluvatn úr borholu og hefur í gegnum tíðina mælst í miklum gæðum. Þar hefur aldrei mælst mengun. Síðustu dagar hafa verið afar lærdómsríkir fyrir sveitarfélagið. Sveitarfélagið tók þá ákvörðun að senda hiklaust út tilkynningu varðandi mögulega mengun, þó svo um væri að ræða staðbundið fyrra sýni. Það gerir sveitarfélagið öðru fremur af ábyrgð við íbúa og fyrirtæki á svæðinu. Þá hafa síðustu dagar einnig leitt ljós hversu skilvirku og góðu eftirliti Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða sinnir. Það er mikið öryggi fólgið í því að hafa virkt eftirlit með grunnstoðum samfélags, eins og vatnsveita er. Síðustu dagar hafa leitt í ljós að það eftirlit virkar vel í Súðavík,“ segir í tilkynningunni.
Tengdar fréttir Saurgerlar fundust í neysluvatni Súðavíkur Íbúar Súðavíkur eru beðnir um að sjóða allt neysluvatn í varúðarskyni. 26. september 2016 13:36 Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Innlent Fleiri fréttir Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira
Saurgerlar fundust í neysluvatni Súðavíkur Íbúar Súðavíkur eru beðnir um að sjóða allt neysluvatn í varúðarskyni. 26. september 2016 13:36