Innlent

Engin klínísk brjóstaskoðun á Norðurlandi

Ingvar Haraldsson & Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hildigunnur Svavarsdóttir og Sigríður Þorsteinsdóttir.
Hildigunnur Svavarsdóttir og Sigríður Þorsteinsdóttir.
„Er einhver ávinningur í hreppaflutningum 250-300 kvenna á ári?“ spyr Þorbjörg Ingvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis.

Frá 16. júní hefur enginn læknir geta sinnt klínískum skoðunum á konum sem finna einkenni í brjóstum eða þurfa að fara í frekari skoðun eftir hópskoðun Krabbameinsfélagsins á Akureyri. Það hefur í för með sér að það í haust þegar hópleit Krabbameinsfélagsins hefst aftur munu þær konur sem hingað til hafa farið í klíníska brjóstakrabbameinsskoðun á Akureyri að ferðast til Reykjavíkur í sambærilega skoðun.

„Staðan er mjög slæm, það munu milli 20 og 30 konur á mánuði þurfa að ferðast til Reykjavíkur í klíníska brjóstakrabbameinsskoðun sem hingað til hafa fengið þessa þjónustu í Reykjavík“ segir Þorbjörg.

Hún bætir við að Sjúkratryggingar Ísland munu nú þurfa að borga megnið af ferðakostnaði þessa kvenna til höfuðborgarinnar sem samkvæmt hennar útreikningum gæti hlaupið á sjöundu milljón króna. „Þetta félag sem ég er í forsvari nær yfir 25.000 manna byggð. Ég hef áhyggjur af mínum skjólstæðingum sem munu þurfa að fara í burtu frá fjölskyldum fyrir skoðun í Reykjavík,“ segir Þorbjörg

Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri bráða-, fræðslu- og gæðasviðs Sjúkrahússins á Akureyri segir vont að konurnar geti ekki fengið þessa þjónustu í heimabyggð. Fjórðungssjúkrahúsið hefur hingað til séð um þessar rannsóknir fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands og sjúkrahúsið hefur haft menntaðan röntgenlækni í verkið.

Hann er nú kominn á eftirlaun og Hildigunnur segir það nú vera á forræði heilbrigðisráðuneytisins og Krabbameinsfélags Íslands að finna lausn á vandanum. „Það vantar fólk með rétta þjálfun í þetta en við munum reyna að finna flöt á þessu ófremdarástandi. Við getum þó ekki framleitt fólk í þetta á sex mánuðum.“

Enginn læknir fæst í verkið

Sigríður Þorsteinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri hjá leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands segir að óbreyttu að þessar konur munu þurfa að ferðast til Reykjavíkur. Þetta fyrirkomulag gildi þó ekki einungis fyrir Norðurland. Hingað til hafa konur alls staðar af landinu þurft að ferðast til Reykjavíkur.  „Okkur finnst staðan ekki góð en vandamálið er að það finnst ekki röntgenlæknir í þetta.“

Sigríður bætir við að vandamálið eigi ekki bara við á Íslandi. „Það vantar röntgenlækna í brjóstamyndatökur og það er ekki séríslenskt. Það vantar lækna alls staðar í kringum okkur og það hefur verið mjög erfitt að fá lækna í þetta.“

Hún segir Krabbameinsfélagið þó vera með öll spjót úti og reyni að gera allt sem þau geti. „En okkur hefur ekki tekist að fá lækni í fasta stöðu, einungis tímabundið til að taka að sér verkefni. Þetta er ekki eitthvað sem læknar sækjast í í dag, því miður,“ segir Sigríður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×