Innlent

Engin hæfnispróf fyrir framhaldsskólanema

Þórdís Valsdóttir skrifar
Framhaldsskólum er ekki heimilt að nýta niðurstöður samræmdra prófa vegna innritunar.
Framhaldsskólum er ekki heimilt að nýta niðurstöður samræmdra prófa vegna innritunar. Fréttablaðið/GVA
Ákveðið hefur verið að falla frá hæfnisprófum sem Menntamálastofnun ætlaði að bjóða upp á. Prófin hefðu framhaldsskólar getað notað við inntöku nemenda. Nýtt kerfi lokaeinkunna var tekið upp nú í vor og eru einkunnir í grunnskólum nú gefnar í bókstöfum.

„Við ræddum hæfnisprófin í tengslum við ójafnræði sem gæti ríkt á milli nemenda í tengslum við nýja einkunnakerfið en það var fallið frá því,“ segir Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar. Hann segir að almenn ánægja ríki meðal skólameistara með nýja einkunnakerfið.

Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar.
Framhaldsskólum er nú ekki heimilt að nýta niðurstöður samræmdra prófa vegna innritunar.

Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, segir að á síðasta ári hafi verið fyrirhugað að Verzlunarskólinn hefði inntökupróf við skólann en hætt var við það vegna fyrirhugaðra hæfnisprófa Menntamálastofnunar. „Í fyrra var staðan þannig að okkur fannst eins og einkunnir hefðu hækkað ótrúlega mikið og Menntamálastofnun hefur tekið undir það,“ segir Ingi.

Ingi telur mikilvægt að einhvers konar samræmdur kvarði verði á einkunnum nemenda við innritun. „Við tortryggjum ekki grunnskólana, enda treystum við þeim fullkomlega,“ segir Ingi.

„Hvernig sem það er gert þá þarf að vera einhver samræmdur kvarði. Það getur vel verið að þessi nýi einkunnakvarði verði til bóta þegar fram í sækir, ég ætla ekki að gera lítið úr því, en óánægjan var mikil núna.“ 



Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júlí 2016




Fleiri fréttir

Sjá meira


×