Innlent

Engin formleg yfirlýsing borist frá Rússum

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Hingað til hefur Ísland verið undanþegið viðskiptaþvingunum Rússa.
Hingað til hefur Ísland verið undanþegið viðskiptaþvingunum Rússa. Fréttablaðið/AFP
Birgir ármannsson
„Það er ekki mín afstaða að hverfa eigi frá þeirri stefnu sem mörkuð var á síðasta ári í þessum efnum,“ segir Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.

„Fyrir það fyrsta er staðan sú að Ísland tók þá ákvörðun strax vorið 2014 þegar ríki, bæði innan Evrópu og í Norður-Ameríku, ákváðu að bregðast við innlimun Krímskaga og ágangi Rússa í Austur-Úkraínu með ákveðnum þvingunaraðgerðum. Þá var tekin sú ákvörðun að Ísland myndi eiga samleið með þeim ríkjum sem það gerðu og ég tel ekki að það séu komnar fram þær forsendur til að breyta þeirri ákvörðun,“ segir hann.

Í gær greindi Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, að til skoðunar væri að fjölga þeim ríkjum sem Rússland beitir viðskiptaþvingunum. Ísland hefur hingað til stutt viðskiptaþvinganir bandamanna sinna gagnvart Rússlandi.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í stöðuuppfærslu á Facebook á laugardaginn að Ísland ætti að hætta að styðja viðskiptaþvinganir gegn Rússum. Utanríkismálanefnd stefnir á að fjalla um málið á morgun. 

Birgir segir að í sjálfu sér hafi engin formleg yfirlýsing eða skilaboð komið frá rússneskum stjórnvöldum til þeirra íslensku en engu að síður miklir hagsmunir í húfi. „Þarna er um að ræða mikla hagsmuni sem við þurfum að fylgjast með og til þess er einmitt fundur utanríkismálanefndar á fimmtudaginn hugsaður, við munum reyna að fá fram stöðuna hvað það varðar.“

Ekki náðist í Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra við vinnslu fréttarinnar en samkvæmt upplýsingum frá aðstoðarmanni hans er enn verið að leita svara í Moskvu og hjá rússneska sendiráðinu um hvort viðskiptaþvingunum verði beitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×