Fótbolti

Engin draumastaða að mæta Robben einn gegn einum

Kolbeinn Tumi Daðason og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
Kári í leik með Malmö gegn Celtic í Glasgow á dögunum.
Kári í leik með Malmö gegn Celtic í Glasgow á dögunum. Vísir/Getty
„Eitt stig eru góð úrslit fyrir fram en að sjálfsögðu spilum við leikinn til að ná í þrjú,“ segir Kári Árnason miðvörður karlalandsliðsins í knattspyrnu. Kári verður væntanlega á sínum stað í hjarta varnarinnar líkt og í fyrri leiknum sem vannst 2-0 eins og frægt er orðið.

„Við héldum þeim algjörlega í skefjum og marktækifæri þeirra voru minniháttar. Við vorum mjög ánægðir með þann leik enda varla annað hægt - þetta var einn af stærri leikjum íslensku þjóðarinnar.“

Kári segir íslenska liðið munu leggja upp með sama varnarleik og skipulag. Agaðan leik en svo geti frábærir einstaklingar innanborðs skapað hluti fram á við. Leikurinn verði vafalítið öðruvísi enda hollenska liðið með nýjan þjálfara. Miðvörðurinn hafi engu að síður trú á að góð úrslit náist.

Bakverðirnir sterkir gegn stjörnum Hollands

Valinn maður er í hverju rúmi hjá hollenska liðinu sem hafnaði í þriðja sæti í síðustu heimsmeistarakeppni. Inn á milli má finna menn í hæsta gæðaflokki. Menn eins og Arjen Robben og Memphis Depay.

„Okkar bakverðir lentu nokkrum sinnum einn á einn gegn þessum mönnum en leystu það mjög vel,“ segir Kári um baráttuna í fyrri leiknum.

„Það er kannski ekki draumaaðstaða að mæta Robben einn á einn. Við erum góð eining og hjálpum hvor öðrum eins og við getum.“

Engar áhyggjur marki undir

Ísland vann 2-1 sigur á Tékkum í síðasta leik sínum í riðlakeppninni í júní. Liðið lenti undir í síðari hálfleik en sneri leiknum sér í vil og hirti stigin þrjú.

„Þegar þú ert að spila í liði sem hefur ekki áhyggjur þótt það fái á sig mark, þá veistu að þú ert að spila í góðu liði. Í þeim leik hafði ég engar áhyggjur af því að við myndum ekki koma til baka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×