Innlent

Engin alvarleg mál á borð lögreglu á Ljósanótt

Atli Ísleifsson skrifar
Sextándu Ljósanóttinni lauk í gær.
Sextándu Ljósanóttinni lauk í gær. Mynd/Reykjanesbær
Engin alvarleg mál komu inn á borð lögreglunnar á Suðurnesjum sem tengdust Ljósanótt í Reykjanesbæ sem lauk í gær.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að hátíðin hafi tekist mjög vel í alla staði.

„Athvarf fyrir unglinga var opnað á laugardagskvöld eins og venja er. Þangað var enginn færður og enginn leitaði þar aðstoðar. Lögreglumenn fóru þar að auki um svæðið og inn á skemmtistaðina og þar var allt í stakasta lagi.

Ljósanótt var vel sótt og skemmtu gestir sér af hjartans list, enda boðið uppá fjölmargt fyrir alla aldurshópa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×