Engin ákvörðun tekin um forgang 23. febrúar 2010 05:30 Einu málin sem alla jafna eru tekin fram fyrir í málaröð Hæstaréttar eru sakamál þar sem fólk situr í gæsluvarðhaldi. Fréttablaðið/GVA
Ekkert liggur fyrir um hvort dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því um miðjan mánuðinn, um að óheimilt sé að gengistryggja lán, fái flýtimeðferð í Hæstarétti. Búið er að áfrýja málinu, en miðað við það sem almennt gerist gæti dóms Hæstaréttar verið að vænta eftir sex til átta mánuði. „Meginreglan er sú að mál eru sett á dagskrá í þeirri röð sem þau eru tilbúin til flutnings,“ segir Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri Hæstaréttar. „En svo eru frávik sem byggjast á forföllum lögmanna,“ bætir hann við, en einnig geti líka aðrar tæknilegar ástæður legið að baki því að mál fari í annarri röð fyrir dóminn. „En einu málin sem beinlínis eru tekin fram fyrir eru sakamál þar sem sakborningar sitja í gæsluvarðhaldi.“ Þorsteinn segir hins vegar ekki hægt að segja til um það á þessari stundu hvort annað vinnulag yrði haft á varðandi nýfallinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. „Það yrði bara skoðað þegar málið er tilbúið til flutnings hvort tilefni sé til þess,“ segir hann. Þorsteinn segir að eftir kærufrest hafi lögmenn 13 vikur til að undirbúa mál sitt til flutnings. „Þá er svolítið mismunandi, eftir því hvenær árs er, hvenær málið fer á dagskrá og gætu liðið þrír til fimm mánuðir,“ segir Þorsteinn. - óká
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fleiri fréttir Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Sjá meira