Sport

Engar tilviljanir í undirbúningi Conor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Undirbúningur Conor McGregor fyrir bardagann gegn Nate Diaz er gríðarlegur og hann ætlar að vera tilbúinn fyrir hvað sem er.

Conor hefur æft lagt mikla áherslu á gólfglímuna sem varð honum meðal annars að falli er hann tapaði gegn Diaz.

Hann hefur einnig boxað við sér stærri menn enda er Diaz hávaxnari en Írinn. Það er hugað að öllu enda yrði það gríðarlegt áfall fyrir Conor ef hann tapar öðru sinni fyrir Diaz.

Hér að ofan má sjá Conor æfa af krafti en Írinn virkar í hrikalega góðu formi.

Bardagi þeirra fer fram þann 20. ágúst og verður í beinni á Stöð 2 Sport.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×