Engar reglur til um hversu margar undirskriftir þarf Jakob Bjarnar skrifar 19. júní 2013 11:09 Guðni Th. Jóhannesson rifjar upp að rúmlega 30 þúsund manns hafi skorað á forsetann í fjölmiðlamálinu og Ólafur Ragnar Grímsson svaraði því kalli.
Undirskriftasöfnun gegn frumvarpi um lækkun veiðigjalda hefur farið hratt af stað, svo hratt að vart finnast þess dæmi. Þó er erfitt að meta það í samanburði við aðrar undirskriftasafnanir vegna ólíkra aðstæðna, meðal annars fyrir og eftir internet. Ísak Jónsson kvikmyndagerðarmaður sagði í samtali við fréttastofu í gær að hann, ásamt félögum sínum, hafi hrundið henni af stað 17. júní klukkan fimm. Ekki er til nein viðmiðunartala, hvenær forseta ber að bregðast við ákalli. Sjálfur hefur hann sagt að fá mál henti betur í þjóðaratkvæðagreiðslu en einmitt kvótamálin. "Hún er ekkert fastnegld," segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. "Rúmlega 30 þúsund manns skrifuðu undir áskorun til Vigdísar Finnbogadóttur á sínum tíma, að staðfesta ekki lög um Evrópska efnahagssvæðið. Sami fjöldi skoraði á forseta, Ólaf Ragnar Grímsson, að synja lögum um fjölmiðla staðfestingar. Og þá varð hann við þeirri ósk. Haustið 2009 vildu um það bil 10 þúsund manns að forsetinn staðfesti ekki lög um fyrsta Icesavesaminginn. En, það dugði ekki til. Forsetinn undirritaði þau lög. Svo voru það 56 þúsund sem skoruðu á forseta að synja nýjum Icesavesamningi staðfestingar. Þetta var í árslok 2009. Hann varð við því," rifjar Guðni upp. Um þetta eru sem sagt engar reglur samkvæmt gildandi stjórnarskrá, allt er þetta háð mati hverju sinni og í raun geðþótta forsetans. En fordæmi eru fyrir því að 30 þúsund undirskriftir hafi orðið til að Ólafur Ragnar hafi gengið gegn þingi, talið það til staðfestingar því að gjá sé þings og þjóðar og synjað lögum staðfestingar. Umrædda undirskriftasöfnun er að finna hér en þegar þetta er skrifað hafa um 16.500 manns skrifað undir áskorunina.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira