Skoðun

Engar nýjar kjarabætur fyrir aldraða

Björgvin Guðmundsson skrifar
Engar nýjar kjarabætur til handa öldruðum er að finna í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2015. Aðeins er í frumvarpinu eðlileg leiðrétting vegna fjölgunar bótaþega lífeyristrygginga milli ára og vegna hækkunar á frítekjumarki lífeyrissjóðstekna ellilífeyrisþega samkvæmt samkomulagi, sem stjórnvöld gerðu við Landssamtök lífeyrissjóða 2010. Í rauninni hefur ríkisstjórnin ekki látið aldraða fá neinar kjarabætur frá því á sumarþinginu 2013. Það sem ríkisstjórnin lét af hendi rakna þá var rýrt í roðinu: Hætt var að láta grunnlífeyri skerðast vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Það gagnaðist þeim betur settu á meðal eldri borgara, þ.e. þeim, sem höfðu góðan lífeyrissjóð. Frítekjumarki vegna atvinnutekna aldraðra var breytt þannig að frítekjumarkið var hækkað úr 40 þúsund kr. á mánuði í 110 þúsund kr. á mánuði. Það kom þeim til góða sem voru á vinnumarkaðnum.

Ríkisstjórnin gerði hins vegar ekkert á sumarþinginu fyrir þá verr settu meðal eldri borgara, þ.e. þá sem höfðu lélegan lífeyrissjóð eða gátu ekki verið á vinnumarkaðnum vegna heilsubrests. Stjórnarflokkarnir gáfu eldri borgurum og öryrkjum stór kosningaloforð fyrir þingkosningarnar 2013. Því var lofað, að kjaragliðnun frá krepputímanum yrði leiðrétt, það er lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkaður til að vega upp gliðnunina sl. fimm ár en á því tímabili hækkuðu lágmarkslaun miklu meira en lífeyrir. Til þess að jafna metin þarf að hækka lífeyri um a.m.k. 20%. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í því að efna þetta loforð. Auk þess lofuðu stjórnarflokkarnir að afturkalla alla kjaraskerðinguna frá 1. júlí 2009. Þar var um sex atriði að ræða. Tvö þeirra, sem ég gat um hér að framan, hafa verið afturkölluð. Eitt rann út af sjálfu sér, þar eð lögin voru tímabundin. En þrjú atriði hafa ekki verið afturkölluð.

Á flokksþingi Framsóknarflokksins 2013 var eftirfarandi samþykkt: „Kjaraskerðing aldraðra og öryrkja, sem tók gildi 1. júlí 2009, verði afturkölluð. Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar þeirra (og kjaragliðnunar) á krepputímanum.“ Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti að afturkalla ætti kjaraskerðinguna frá 2009 tafarlaust. Miðað við þessar ákveðnu samþykktir komast flokkarnir ekki hjá því að efna þessi kosningaloforð. Það verður að efna þau strax.

Þrátt fyrir að aðeins lítill hluti kosningaloforða við aldraða hafi verið efndur lét ríkisstjórnin sér sæma að minnka hækkun á lífeyri, sem aldraðir og öryrkjar áttu að fá samkvæmt fjárlagafrumvarpinu um áramót. Lífeyrir átti að hækka um 3,5%. En nú hefur verið ákveðið að að hækkunin verði aðeins 3%. Þetta gerist þótt lífeyrir hafi um tíma verið frystur í kreppunni þegar laun voru að hækka. Ég skora á ríkisstjórnina að leiðrétta þetta aftur.




Skoðun

Sjá meira


×