Íslenski boltinn

Engar breytingar á þjálfarateymi Stjörnunnar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Rúnar Páll Sigmundsson verður áfram.
Rúnar Páll Sigmundsson verður áfram. vísir/pjetur
Rúnar Páll Sigmundsson verður áfram þjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deild karla í fótbolta og Brynjar Björn Gunnarsson verður aðstoðarþjálfari liðsins ásamt Davíð Snorra Jónassyni.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Stjörnunnar en Garðabæjarliðið hefur ákveðið að gera engar breytingar á þjálfarateyminu fyrir næstu leiktíð.

Stjarnan byrjaði og endaði Pepsi-deildina vel í sumar. Það fór svo að Stjörnumenn náðu öðru sætinu á eftir Íslandsmeisturum FH og verða í forkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.

Fjalar Þorgeirsson verður áfram markvarðaþjálfari liðsins en þetta er sama teymi og var með liðið í sumar. Davíð Snorri er nýjasti meðlimurinn en hann kom frá Leikni fyrir síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×