Innlent

Endurlífgaður eftir umferðarslys við Hvítársíðu

Birgir Olgeirsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins í dag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins í dag. Vísir/Vilhelm
Erlendur ferðamaður var endurlífgaður á vettvangi eftir umferðarslys við Hvítársíðu á Vesturlandi á fimmta tímanum í dag. Maðurinn var á ferð á bifhjóli ásamt konu en hann missti stjórn á hjólinu í lausamöl. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi var maðurinn endurlífgaður á vettvangi en ekki er vitað frekar um ástand hans að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×