Innlent

Endurheimti iPod sem fór óvart í Evrópureisu

Bjarki Ármannsson skrifar
Júlía er himinlifandi með að hafa fengið tónhlöðuna sína aftur.
Júlía er himinlifandi með að hafa fengið tónhlöðuna sína aftur. Vísir/Samsett
Fæstir sem týna iPodum sínum eða svipuðum græjum í útlöndum eiga væntanlega von á að fá þær nokkurn tímann aftur upp í hendurnar. Enn síður að græjan fari á flakk um Evrópu í nokkrar vikur og skili sér svo inn um póstlúguna með myndum af ferðalagi sínu. Júlía Guðbjörnsdóttir hefur þó reynslu af því.

„Þetta er alveg geðveikt,“ segir Júlía, sem í gær fékk iPod sem hún týndi í Svíþjóð í sumar sendan heim til sín í pósti. „Núna get ég loksins farið út að hlaupa.“

Með iPodnum fylgdi bréf frá fjórum ungum Svíum sem fundu græjuna hennar Júlíu í bílaleigubíl sem hún hafði leigt í sumarfríinu sínu í Svíþjóð.

„Þeir hafa þá tekið bílaleigubílinn á eftir okkur og fundið iPodinn, örugglega einhversstaðar í sætunum,“ segir Júlía. „Ég var að senda svolítið mikið til Íslands og það var kvittun með nafninu mínu og heimilisfanginu í hanskahólfinu. Bílaleigan þreif greinilega ekki bílinn á milli, þannig þeir sáu bara heimilisfangið og vonuðust til að þetta væri ég.“

Með iPodnum fylgdi bréf og myndasyrpa.Mynd/Júlía Guðbjörnsdóttir
Gerðu myndasyrpu með iPodnum

Miskunnsömu Svíarnir sendu þó ekki iPodinn til Íslands strax, heldur tóku hann með sér í ferðalag sitt um Evrópu og tóku myndir af honum hvert sem þeir fóru. Þessar myndir fylgdu svo með bréfinu til Júlíu þannig að hún gat kynnt sér ferðalag tónhlöðu sinnar, sem kom meðal annars við í Amsterdam, Hamborg og Champagne-héraði í Frakklandi. Eins og sést á meðfylgjandi myndum, útbjuggu ferðalangarnir hálfgert póstkort frá hverjum stað.

„Þeir lögðu alveg vinnu í þetta,“ segir Júlía. „Það er alltaf mynd af iPodnum við hliðina á bjór og svona.“

Í bréfi Svíanna segjast þeir hafa viljað sjá til þess að tónhlaðan hennar Júlíu skemmti sér líka. Þau eru nú öll vinir á Facebook og hefur Júlía boðið þeim að koma til Íslands á næstunni til að heimsækja iPodinn.

„Þetta eru líka rosa sætir strákar, sem skemmir ekki,“ bætir Júlía við.

Bréfið í heild sinni og nokkrar vel valdar myndir úr ferðinni má sjá hér fyrir neðan.

Bréfið sem barst Júlíu.Mynd/Júlía Guðbjörnsdóttir
Frá Bæjaralandi.Mynd/Júlía Guðbjörnsdóttir
Frá Búrgund í Frakklandi.Mynd/Júlía Guðbjörnsdóttir
Frá Ítalíu.Mynd/Júlía Guðbjörnsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×