Innlent

Endur­upp­töku­nefndin kynnir niður­stöðu sína á föstu­dag

Birgir Olgeirsson skrifar
Endurupptökunefnd í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu mun birta niðurstöðu sína á vef endurupptökunefndar klukkan 14 á föstudag. Þar verða birtir úrskurðir er varðar þá sex sem sakfelldir voru í málinu í Hæstarétti í febrúar árið 1980.

Vísir greindi frá því fyrr í mánuðinum að endurupptökunefndin myndi ljúka störfum undir lok þessa mánaðar en í dag er greint frá því á vef mbl.is að niðurstaðan verði birt á vef endurupptökunefndar á föstudag klukkan 14.

Vinnan staðið yfir í á þriðja ár

Björn L. Bergsson, formaður endurupptökunefndarinnar, segir vinnu nefndarinnar hafa staðið yfir langt á þriðja ár.

Hann segir endurupptökunefndina ekki hafa tekið skýrslur af fólki vegna málsins, allt slíkt hefur farið í gegnum settan ríkissaksóknara í málinu, Davið Þór Björgvinsson.

„Ég held ég fari ekki að tjá mig um það,“ segir Björn þegar hann er spurður hvort einhverjar nýjar upplýsingar hafi komið fram sem nýst hafi endurupptökunefndinni.

Frá meðferð málsins árið 1978.Vísir
Framburður Austfirðings skilaði engu

Í desember síðastliðnum var greint frá því að lögreglan á Austurlandi hefði tekið skýrslu af karlmanni í nóvember sem taldi sig hafa upplýsingar varðandi málið sem gætu haft áhrif á það hvort nefndin ákveði að taka upp málið að nýju, en upplýsingarnar vörðuðu hvarf Geirfinns Einarssonar.

Þeir Guðmundur og Geirfinnur voru alls ótengdir í lifanda lífi en málum þeirra var spyrt saman eftir dauða þeirra.

Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkissaksóknari vegna endurupptökubeiðni í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, lét nefndina vita af manninum sem vildi koma þessu upplýsingum á framfæri.

Endurupptökunefndin fékk gögn sem vörðuðu vitnisburð mannsins í hendurnar en eftir yfirferð á þeim tilkynnti hún settum saksóknara að nefndin teldi ekki þörf á frekari skoðun á þeirri ábendingu, að sögn Björns.

Björn segir ekkert hafa komið fram í máli mannsins sem gaf tilefni til frekari könnunar nefndarinnar.

Málið er frá 1974.
Vill ekki tjá sig um mennina tvo sem handteknir voru í fyrra

Í júní síðastliðnum voru tveir karlmenn handteknir og yfirheyrðir vegna rannsóknar á þætti málsins sem varðar Guðmund Einarsson en þeir voru látnir lausir að lokinni yfirheyrslu. Björn vill ekki fara nánar út í hvað þar hafi komið fram og hvort það hafi nýst nefndinni.

„Þetta verð menn bara að lesa,“ segir Björn og vísar þar til niðurstöðunnar sem birt verður á vef endurupptökunefndar á föstudag.

Líkt og áður hefur komið fram þá hefur vinna nefndarinnar staðið yfir í á þriðja ár og segir Björn þetta hafa verið umfangsmikið verk. Spurður hvort þetta hafi verið með stærri verkefnum sem hann hafi tekið að sér yfir ævina segir Björn því fljótsvarað: „Já.“

43 ár frá hvarfi Guðmundar og Geirfinns

Guðmundar- og Geirfinnsmálið varðar mannshvörf sem bæði áttu sér stað árið 1974. Guðmundur Einarsson sást síðast í Hafnarfirði aðfaranótt 27. janúar 1974 eftir dansleik í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Eiginkona Geirfinns Einarssonar sá hann síðast klukkan 22:30 í nóvember sama ár samkvæmt gögnum lögreglunnar í Keflavík.

Næstu árin fór fram mikil rannsókn á málinu. Um sex árum frá hvarfi þeirra Guðmundar og Geirfinns voru þau Albert Klahn Skaftason, Erla Bolladóttir, Guðjón Skarphéðinsson, Kristján Viðar Viðarsson, Sævar Marinó Ciesielski og Tryggvi Rúnar Leifsson dæmd til fangelsisvistar Í Hæstarétti í febrúar árið 1980 vegna aðildar að dauða þeirra Guðmundar og Geirfinns.

Sævar Marinó Ciesielski fékk lengsta dóminn, eða sautján ára fangelsisvist. Kristján Viðar var dæmdur í sextán ára fangelsi, Tryggvi Rúnar 13 ára fangelsi, Guðjón í tíu ára fangelsi, Erla í þriggja ára fangelsi og Albert Klahn í 12 mánaða fangelsi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×