Körfubolti

Endaspretturinn gæti breytt öllu fyrir liðin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson og félagar í Stjörnunni eiga tölfræðilega erfiðasta prógrammið eftir í sex síðustu umferðum Domino's-deildar karla.
Hlynur Bæringsson og félagar í Stjörnunni eiga tölfræðilega erfiðasta prógrammið eftir í sex síðustu umferðum Domino's-deildar karla. vísir/eyþór
Spennan hefur líklega sjaldan verið meiri á þessum tíma í Domino’s-deild karla. Snæfellsliðið fellur reyndar úr deildinni við næsta tap en mikil barátta er fram undan um hin ellefu sætin. Fréttablaðið fór yfir lokaumferðirnar og skipti deildinni upp í þrjú baráttusvæði.

Þrjú lið eiga möguleika á deildarmeistaratitlinum en Íslandsmeistarar KR eru samt í mjög góðri stöðu.

KR er með tveggja stiga forystu og næstu fimm leikir bikarmeistaranna eru á móti liðum í sjötta sæti eða neðar. KR gæti því auðveldlega verið búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn þegar kemur að leik á móti Stjörnunni í lokaumferðinni. Ef ekki þá sjá menn fyrir sér möguleika á úrslitaleik í DHL-höllinni 9. mars.

Stjarnan er bara tveimur stigum á eftir KR en á mun erfiðari leiki eftir. Liðið á sem dæmi eftir að mæta liðunum í 3., 4. og 5. sæti áður en kemur að leiknum við KR í lokin.

Tindastóll á eftir heimaleiki á móti erfiðari liðunum (2. til 5. sæti) en útileiki á móti þeim léttari (10. til 12. sæti) sem ætti að koma sér vel og það er því ekki hægt að afskrifa þá.

Liðin í 4. (Þór Þorl.) og 5. sæti (Grindavík) eru jöfn að stigum og nýbúin að mætast í mögnuðum undanúrslitaleik í Maltbikarnum. Þar er allt hnífjafnt og liðin tveimur stigum neðar, Þór Ak. og Njarðvík, gætu vissulega blandað sér í baráttuna um fjórða sætið auk þess að liðin í 8. og 9. sæti eiga smá von líka.

Þór úr Þorlákshöfn á eftir erfiða útileiki á móti liðunum í 2. (Stjarnan) og 3. sæti (Tindastól) en Grindvíkingar fá aftur á móti annan þeirra leikja á heimavelli (Stjarnan). Grindvíkingar mæta nágrönnum sínum úr Reykjanesbæ í næstu leikjum.

Þór Akureyri byrjar á erfiðum leik á heimavelli á móti toppliði KR en mæta svo liðum í kringum sig í töflunni. Þar eru sóknarfæri.

Njarðvíkingar eru eitt heitasta lið deildarinnar með fjóra sigra í röð en þeir mæta fleiri liðum á topp fimm (3) heldur en liðin ofar (2).

Liðin sem eru fjórum stigum frá fjórða sætinu, Keflavík og ÍR, þurfa ekki bara að horfa upp töfluna heldur einnig niður á lið Hauka og Skallagríms sem eru bara einum sigri á eftir þeim.

Borgnesingar sitja eins og er í fallsæti eftir fjögur töp í röð og eiga auk þess mjög erfiða leiki eftir. Það er því auðveldast að spá Skallagrími falli en ekki má gleyma því að Skallagrímsliðið hefur unnið fjóra leiki á móti liðum í efri hlutanum (Stjarnan, Þór Þorl., Grindavík og Þór Ak.) og fóru í framlengingu gegn KR.

Haukarnir hafa valdið miklum vonbrigðum en þeir hafa tapað mörgum jöfnum leikjum í vetur og fari það að breytast á lokasprettinum en úrslitakeppnin ekki svo fjarlægur draumur. Þeir losna hins vegar ekki nærri því strax við falldrauginn, ekki frekar en liðin í kringum þá í töflunni.

Hér á síðunni er hægt að skoða mótherja liðanna og styrkleika þeirra út frá árangrinum til þessa í deildinni í vetur.

grafík/fréttablaðið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×