Fótbolti

Endar Evra hjá Crystal Palace?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Evra hefur leikið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu með þremur liðum.
Evra hefur leikið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu með þremur liðum. vísir/getty
Svo gæti farið að Patrice Evra spili aftur í ensku úrvalsdeildinni innan tíðar en þessi öflugi franski bakvörður hefur verið orðaður við Crystal Palace.

Evra hefur verið á mála hjá Juventus síðustu ár eftir að hafa spilað lengi með Manchester United.

Hann var hins vegar ekki í leikmannahópi Juventus í 3-0 sigri liðsins á Bologna um helgina og var í fyrstu orðaður við Valencia og meira að segja Manchester United, þá sem þjálfari.

Enska blaðið Guardian fullyrðir hins vegar að forráðamenn Crystal Palace eigi nú í viðræðum við Evra sem hefur óskað þess að fá að yfirgefa Juventus.

Sam Allardyce er stjóri Palace og er að leita að manni til að fylla í skarð Pape Souare sem er nú frá vegna meiðsla. Talið er að Evra verði boðinn átján mánaða samningur.

Samningur hans við Juventus rennur út í lok leiktíðarinnar en mögulegt er að framlengja hann um eitt ár. Evra hefur hins vegar lítið fengið að spila á tímabilinu og virðist það því ólíklegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×