Lífið

Emmsjé Gauti verður kynnir í Ísland Got Talent: Ætlar beint í ræktina til líta vel út á skjánum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auðunn Blöndal verður ekki kynnir í Ísland Got Talent.
Auðunn Blöndal verður ekki kynnir í Ísland Got Talent. vísir
Rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, verður kynnir í þriðju þáttaröð Ísland got Talent sem fer í sýningar í vetur á Stöð 2.

„Þetta byrjar á því að vinkona mín segir við mig að Jón Gnarr sé að fara hringja í mig með erindi útaf Ísland Got Talent, sem var mjög gott að fá að vita fyrirfram annars hefði ég alltaf haldið að um símahrekk væri að ræða,“ segir Gauti um þetta nýja hlutverk sem hann er að fara taka að sér.

Miklar breytingar hafa verið gerðar á þættinum en búið að er skipta út allri dómnefndinni og nú er það orðið ljóst að nýr kynnir verður á sviðinu í vetur. Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal hefur verið í þessu hlutverki en Gauti Þeyr kemur inn í hans stað.

„Í fyrstu hljómar þessi hugmynd frekar brengluð, að ég sé kynnir í Ísland Got Talent en síðan þegar ég fór að hugsa þetta betur þá held ég að þetta sé bara mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni. Ég hef alveg tekið að mér nokkur svona kynnastörf en þetta er það langstærsta.“

Áður hafði verið greint frá því að Dr. Gunni, Ágústa Eva, Jakob Frímann og Marta María verði í dómnefndinni.

Gauti segist vera búinn að hengja upp um tuttugu myndir af Auðunni Blöndal útum allt heima hjá sér.

„Ég er dálítið mikið að stúdera Audda núna og hringi sennilega í hann og fæ einhver ráð frá honum. Ég sagði síðan við Jón [Gnarr] að ég þyrfti að fá einkaþjálfara af því að ég ætla vera alveg ógeðslega massaður í sjónvarpinu. Núna ætla ég að fara í Hot Yoga svona tvisvar á dag og lyfta mjög þungum lóðum alla daga og mæta síðan alveg kafmassaður. Ég ætla ekki einu sinni að passa á Ísland Got Talent plakatið, ég ætla vera svo stór.“

Hann segir að vissulega sé þetta alveg nýtt fyrir hann en þetta hljómi eins og rosalega skemmtilegt verkefni.


Tengdar fréttir

Marta María og Dr. Gunni verða dómarar í Ísland Got Talent

Búið er að ákveða að Marta María Jónasdóttir, ritstjóri Smartlands, Dr. Gunni og Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður, verði dómarar í þriðju þáttaröðinni í hæfileikakeppninni Ísland Got Talent í vetur.

Tekur sæti í dómnefnd Ísland Got Talent

Hinn margreyndi tónlistarmaður og Stuðmaður Jakob Frímann Magnússon segir að það sé pressa að taka við af Bubba Morthens, sem dómari í Ísland Got Talent.

Ágústa Eva dómari í Ísland Got Talent

Ágústa Eva Erlendsdóttir bætist í dómarahópinn í Ísland Got Talent. Hún segist vera hrifnæm en með glettilega mikið af pönki í sér, þannig að það sé aldrei að vita hvort hún noti gullhnappinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×