Tónlist

Emmsjé Gauti upp á húsþökum um alla Reykjavík í nýju myndbandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikalega töff myndband.
Hrikalega töff myndband.
Rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, gaf í gær frá sér nýtt myndband við lagið Reykjavík.

Lagið er á plötunni Vagg & Velta og þykir nokkuð vinsælt hér á landi í dag. Í myndbandinu má sjá rapparann upp á húsþökum um alla Reykjavíkurborg og er greinilega öllu tjaldað til í gerð myndbandsins.

Það var Freyr Árnason sem leikstýrði myndbandinu og er það framleitt af Tjarnargötu. Hér að neðan má sjá þetta stórglæsilega myndband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×