Lífið

Emmsjé Gauti selur guggusegul

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Bíllinn er til sölu út daginn.
Bíllinn er til sölu út daginn.
Rapparinn Emmsjé Gauti heldur uppboð á bíl sínum á Facebook-síðunni Brask og brall. Um er að ræða skutbíl af tegundinni Mitsubishi Lancer. Auglýsingin sem Gauti hefur sent frá sér með bílnum hefur vakið mikla athygli. Hún lítur svona út:

"ATH ATH þessi GUGGUSEGULL er til sölu!

Kemst mjög hratt í brekkum, beygir drulluvel, hægt að snúa við rúðupissflipanum til að sprauta á aula, HALD FYRIR 2 GOSDRYKKI eða jafnvel svellkalda snillinga, rúmgott hanskahólf (lítið notað), hefur komið 2x á bíladaga og sumir sögðu VÓ FÍNN BÍLL YO. (næstum því jeppi)

Aukaeiginleikar:

Vatnsheldur

Sólarhlífar (báðum megin)

Hald fyrir bílhrædda

Skott

Klinkhólf

Flauta (ATH HEYRIST MJÖG HÁTT)

Miðstöð

MMC Lancer GLXi, 99 árgerð til sölu.

4 Hjóladrifinn og beinskiptur.

Ekinn um 178.000 km. aðalega á netta staði.

Agent Fresco hafa allir komið í bílinn og það eru pottþétt hár út Kela einhverstaðar milli sætanna.

Er á ballin álfelgum.

Sturluð heilsársdekk.

Afturendinn hýsir þennan líka fína krók!

Nýlega búið að taka allt headið í gegn og setja í hann nýja geðveika tímareim.

Skipt um olíur og kælivatn í leiðinni.

Á myndunum vantar á hann grillið en það fylgir með.

ATH *Það þarf að laga pústkerfið á honum. Skítlétt. *

Ég hlusta á öll tilboð!

Snilld hafðu samband.. Ég er í alvöru að selja þennan Guggusegul..."

Bíllinn er dökkblár á litinn og Gauti hefur örugglega fengið hugmyndir að lögum á meðan hann hefur setið undir stýri.
Ætlar að uppfæra í rappbíl

„Þetta er náttúrulega flottur fjölskyldubíll," segir Gauti í samtali við Vísi og heldur áfram:

„Ég ætla að selja hann því ég á náttúrulega engin börn. Ég ætla að fá mér sportlegri bíl með dökkum rúðum."

Gauti segir að bíllinn komi hlaðinn minningum og andartökum úr íslenskri tónlistarsögu. „Ég held að það sé DNA úr öllum í íslensku tónlistarsenunni. Bæði útaf því að magrir hafa komið inn í bílinn og útaf því að ég hef ekki verið sérstaklega duglegur að þrífa bílinn."

Rapparinn segir frá því að hægt verði að kaupa bílinn þrifinn ef fólk sækist eftir því. „Þetta verður valkvætt. Það er náttúrulega stemning að taka hann eins og hann er núna.“

Uppboðið á bílnum stendur út daginn. Sem stendur er hæsta boð í hundrað þúsund krónum. Hægt er að bjóða í bílinn í gegnum Facebook-síðuna Brask og Brall.

Hér má sjá bílinn að aftan. Skottið er heilt.
Gauti felur ekki smávægilegar rispur á bílnum og birtir þær á Facebook.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×