Erlent

Emmanuel Macron sakaður um að hylma yfir ofbeldi öryggisvarðar síns

Sylvía Hall skrifar
Emmanuel Macron er sagður hafa vitað af atburðunum frá 2. maí, degi eftir mótmælin. Hér sést Benalla hægra meginn við forsetann.
Emmanuel Macron er sagður hafa vitað af atburðunum frá 2. maí, degi eftir mótmælin. Hér sést Benalla hægra meginn við forsetann. Vísir/Getty
Öryggisvörður Emmanuel Macron Frakklandsforseta var færður í varðhald í morgun eftir að myndband af honum birtist í fjölmiðlum í vikunni þar sem hann sést beita tvo mótmælendur ofbeldi, klæddur í einkennisklæði lögreglumanns. Alexandre Benalla, öryggisvörðurinn sem um ræðir, starfar í innsta hring Macron.

Myndbandið sem um ræðir var tekið í mótmælum sem fóru fram á verkalýðsdaginn þann 1. maí síðastliðinn. Benalla hafði beðið um frídag til þess að fylgjast með störfum lögreglu þann daginn, en hann starfaði áður sem öryggisvörður en þó aldrei innan lögreglunnar.

Í mótmælunum veittist Benalla að tveimur mótmælendum, karli og konu, og dró þau úr fjöldanum þar sem hann réðst á manninn, lamdi hann og stappaði á honum. Óeirðalögregla fylgdist með framgöngu Benalla án þess að skerast í leikinn, en Benalla var klæddur sem lögregluþjónn á mótmælunum. 



Sjónarvottar segja það hafa verið augljóst að maðurinn sem varð fyrir ofbeldinu hafi verið sárkvalinn og aðferðir Benalla voru ekki eitthvað sem þekkist innan lögreglunnar. Atvikið hafi verið óeðlilegt og ólöglegt.

Emmanuel Macron ásamt Alexandre Benalla.Vísir/Getty

Reyndi að eyða öryggismyndefni eftir fréttaflutning

Benalla var sendur í tveggja vikna leyfi í kjölfar árásarinnar, en sneri aftur til starfa eftir það. Hann var settur í annarskonar störf, en hélt þó starfi sínu í innsta hring forsetans og var meðal annars í liðsrútunni ásamt forsetanum eftir sigurinn á heimsmeistaramótinu. 

Eftir að myndbandið komst í dreifingu í fjölmiðlum reyndi Benalla, ásamt fleiri starfsmönnum forsetans, að komast yfir öryggismyndefni og stela því. Þrír lögreglumenn, þar á meðal tveir háttsettir innan stéttarinnar, voru sendir í leyfi eftir atvikið.



Uppsagnarferli í vinnslu hjá forsetanum 

Í yfirlýsingu frá Élysée höllinni segir að forsetinn sé þegar í stað farinn að vinna í uppsögn Benalla eftir að nýjar staðreyndir í máli hans komu upp á yfirborðið. 

Þingmenn í Frakklandi hafa tjáð sig um málið og segja það vera með öllu óásættanlegt. Élysée höllin hafi vitað af atvikinu 2. maí og ekki vísað því til lögreglunnar, heldur sett Benalla í tveggja vikna leyfi frá störfum í kjölfarið. 

Þingmenn frá báðum vængjum stjórnmálanna hafa sakað forsetann um að hylma yfir með ofbeldi öryggisvarðarins og hafa bent á að meðferð málsins væri með öðrum hætti ef um væri að ræða venjulegan borgara. 

Benalla gæti átt yfir höfði sér ákærur fyrir ofbeldisglæp, fyrir að klæða sig ólöglega upp sem lögreglumann og að hafa reynt að stela öryggismyndefni og eyða sönnunargögnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×