Glamour

Emma Stone stutthærð á forsíðu Vogue

Ritstjórn skrifar
Forsíðan var skotin af Mert og Marcus.
Forsíðan var skotin af Mert og Marcus. Mynd/Skjáskot
Leikkonan Emma Stone landaði nóvember forsíðu bandaríska Vogue þetta árið. Á forsíðunni er fólk einnig hvatt til þess að kjósa. 

Forsíðuþátturinn var tekinn af ljósmyndaradúóinu Mert og Marcus. Það sem vekur athygli við forsíðuna er stutta hárið hennar Emmu. Hún líkist meira fyrirsætunum Edie Sedwick eða Mia Farrow heldur en sjálfri sér. Aðeins er þó um hárkollu að ráða þar sem hún leyfir fallega rauða hárinu sínu að njóta sín í myndaþættinum sjálfum. 






×