Fótbolti

Emil spilaði í jafnteflisleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emil í leik með Hellas Verona.
Emil í leik með Hellas Verona. Vísir/AFP
Emil Hallfreðsson spilaði allan leikinn er lið hans, Hellas Verona, gerði 1-1 jafntefli við Lazio í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Senad Lulic kom Lazio yfir á 43. mínútur en Luca Toni jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu á 69. mínútu.

Emil komst tvívegis nálægt því að leggja upp mark fyrir Toni en í fyrri hálfleik náði framherjinn að skora mark eftir sendingu Emils sem var dæmt af vegna rangstöðu.

Hellas Verona hefur unnið aðeins einn af síðustu sex leikjum sínum og er í ellefta sæti deildarinnar með tólf stig. Lazio er í þriðja sætinu með sextán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×