Fótbolti

Emil og félagar gerðu jafntefli við meistarana

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Emil í baráttu við Juan Cuadrado, leikmann Juventus.
Emil í baráttu við Juan Cuadrado, leikmann Juventus. vísir/getty
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Udinese sem gerði 1-1 jafntefli við Ítalíumeistara Juventus á heimavelli í dag.

Udinese hefur gengið frekar illa að undanförnu og ekki unnið í fimm leikjum í röð. Liðið er í 14. sæti deildarinnar með 30 stig.

Kólumbíumaðurinn Duvan Zapata kom Udinese yfir á 37. mínútu en Leonardo Bonucci jafnaði metin eftir klukkutíma leik.

Juventus er með átta stiga forskot á toppi deildarinnar þegar 11 umferðum er ólokið.

Inter gerði góða ferð til Sardiníu og vann 1-5 sigur á Cagliari.

Ivan Perisic (2), Ever Benega, Mauro Icardi og Robert Gagliardini skoruðu mörk Inter sem er í 5. sæti deildarinnar.

Úrslit dagsins:

Udinese 1-1 Juventus

Cagliari 1-5 Inter

Atalanta 0-0 Fiorentina

Crotone 0-0 Sassuolo

Empoli 0-2 Genoa

Torino 3-1 Palermo




Fleiri fréttir

Sjá meira


×