Íslenski boltinn

Emil leikmaður ársins að mati leikmannana | Höskuldur efnilegastur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Emil með viðurkenningarskjöld og Icelandair-hornið í gær.
Emil með viðurkenningarskjöld og Icelandair-hornið í gær. Mynd/KSÍ
Leikmenn Pepsi-deildarinnar völdu Emil Pálsson, miðjumann FH, sem besta leikmann Pepsi-deildarinnar en þetta var tilkynnt í gær.

Hinn 22 ára gamli Emil lék stórt hlutverk í liði FH sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum.

Emil hóf tímabilið á láni hjá Fjölni á lánssamningi og lék frábærlega í herbúðum Grafarvogsliðsins en hann var kallaður aftur í lið FH þann 25. júlí síðastliðinn eftir meiðsli Sam Hewson og var honum hent beint inn í liðið.

Emil lék stórt hlutverk í FH-liðinu það sem eftir lifði sumars en hann lék alls 12 leiki fyrir FH í Pepsi-deildinni í sumar, þar á meðal alla leikina þegar FH vann sjö leiki í röð og átta af níu leikjum. Skoraði hann í þeim fjögur mörk en hann skoraði oft mikilvæg mörk fyrir FH í sumar.

Höskuldur með verðlaunin í gær.Mynd/KSÍ
Þá var Höskuldur Gunnlaugsson, leikmaður Breiðabliks, valinn efnilegasti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni af leikmönnum deildarinnar.

Höskuldur sem er fæddur árið 1994 kom upp úr unglingastarfi félagsins en hann lék 20 leiki í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði í þeim 6 mörk.

Missti hann aðeins af tveimur leikjum vegna veikinda í sumar en Höskuldur greindist með hettusótt í júní.

Þá var tilkynnt í gær að 1107 áhorfendur mættu að meðaltali á hvern leik sem er besta meðaltalsaðsókn frá árinu 2011.

Flestir mættu að meðaltali á leiki FH, 1925 en flestir mættu á leik FH og Breiðabliks í 9. umferð, alls 2843.

Flestir áhorfendur mættu á fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í ár en 10.305 mættu á leikina í fyrstu umferð á meðan aðeins 3131 mættu á lokaumferðina sem fór fram í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×