Fótbolti

Emil lagði upp mark Udinese í tapi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Emil í leik með Udinese
Emil í leik með Udinese vísir/getty
Udinese tapaði 2-1 fyrir Chievo á heimavelli í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Daniel Zapata kom Udinese yfir á 25. mínútu eftir sendingu Emils Hallfreðssonar.

Udinese var yfir allt þar til á 82. mínútu þegar Lucas Castro jafnaði metin. Fabrizio Cacciatore tryggði Chievo sigurinn á fimmtu mínútu uppbótartíma.

Udinese er með sex stig eftir fjóra leiki en Chievo fór upp í sjö stig í efri hluta deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×