Fótbolti

Emil lagði upp mark í endurkomusigri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Emil Hallfreðsson lagði upp mark.
Emil Hallfreðsson lagði upp mark. vísir/getty
Emil Hallfreðsson og félagar hans í ítalska A-deildarliðinu Udinesen unnu þýðingarmikinn sigur á Palermo, 3-1, í tíundu umferð deildarinnar í kvöld.

Heimamenn á Sikiley komust yfir eftir aðeins tíu mínútur en Cyril Théréau  jafnaði metin á 36. mínútu og staðan 1-1 í hálfleik.

Emil Hallfreðsson lagði upp annað mark Udinese á 74. mínútu fyrir Frakkann Seko Fofana en hann kom gestunum í 3-1 fimm mínútum síðar og þar við sat.

Heimamenn misstu mann af velli undir lokin en mikilvæg þrjú stig í sarpinn hjá Udinese sem þurfti á þeim að halda í fallbaráttunni.

Udinese er nú með þrettán stig og kvaddi fallsvæðið í bili en þetta er annar sigur liðsins í röð eftir að það var án sigurs í fjórum leikjum á undan því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×